Ný stefna í lífinu?

Ný stefna í lífinu?

 

Um ára mót huga margir að því að gera breytingar á lífi sínu. Við erum svo misjafnlega góð í því að framkvæma þetta eins og gengur, ég var svo heppin að prófa Sahajayoga fyrir u.þ.b. 15 árum, í Sahajayoga eru engin boð eða bönn, við bara finnum út hvað er skynsamlegast í stöðunni, þegar við öðlumst jafnvægi í sálarlífinu, athyglin verður líka betri sem hjálpar manni að virka í umhverfinnu.

Nútímasamfélag er einfaldlega orðið of flókið til að mannsheilin ráði við allt sem við höldum að við þurfum að gera, við þurfum að slaka á og velja úr hvað skiptir máli.

Sahajayoga má segja að sé ný hugleiðslu aðferð, en hún er þó í sátt og samfloti við það sem margir andlegir leiðtogar hafa kennt eins og t.d.: Gömlu Yoga fræðin, Jesus; Buddha, Lao Tse; Socrates, og fl.

sahajayoga.is.    facebook.com/sahaja.yoga.reykjavik

Hér fylgir smá myndband á ensku sem skýrir hvernig Sahajayoga virkar:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Fólk þyrfti ekki að kollvsrpa sínu venjulega kristna helgihaldi 

eða afneita sinni kristnu trú;

þó svo að fólk myndi kynna sér NÚTÍMA-JÓGA /TILGANG ORKUSTÖÐVANA 7

eitt kvöld í viku í safnaðarheimilum landsins,

frekar en t.d. að horfa á sjónvarpsþætti eins og "Fjörskyldu".

Jón Þórhallsson, 1.1.2022 kl. 14:57

2 Smámynd: Daði Guðbjörnsson

 Allir sem leita að Guði eru í sama liði.

Daði Guðbjörnsson, 1.1.2022 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband